
Viðhald & viðgerðir
Við sinnum viðhaldi, bilanagreiningu og yfirhalningu á krönum, lyftum og lyfturum. Með sérhæfðu teymi og vönduðum ferlum tryggjum við öruggan og áreiðanlegan rekstur dag eftir dag.
Reglubundið viðhald
Skipulagt eftirlit á krönum, lyftum, lyfturum og rafstöðvum. Smurning, olíuskipti og skoðun á slitflötum.
koma í veg fyrir bilanir áður en þær gerast
Bilanagreining og viðgerðir
Greining á rafmagns-, vökvakerfis- og stýringarbilunum. Viðgerðir á íhlutum, mótorum, vökvadælum og stjórnbúnaði. Endurstillingar, prófanir og afhending á fullbúnum búnaði.
stytta niðritíma og tryggja hámarksafköst
Endurbygging og yfirhalningar
Yfirferð á eldri búnaði sem krefst uppfærslu eða endurnýjunar. Málun, burðarviðgerðir og uppfærsla á búnaði í samræmi við nýja staðla. Full “refit” þjónusta – tæki komið í stand eins og nýtt.
lengja líftíma og auka endurnýtingu tækja
Útkallsþjónusta / Neyðarviðgerðir
Viðbragð við bilunum á verkstað eða í rekstri. Tæknimenn senda út með varahluti og verkfæri til að leysa vandann á staðnum. Þjónusta í boði allan sólarhringinn eftir samkomulagi.
halda verkefninu gangandi – án tafa
Varahlutaþjónusta
Aðgangur að nýjum og endurnýttum varahlutum fyrir helstu kranamerki (t.d. Cattaneo, Comansa, Grove). Fljót afhending og sérpantanir eftir þörfum.
tryggja varanlega lausn með upprunalegum íhlutum
Vantar þig hjálp?
Hvort sem um er að ræða viðhald, bilanir eða ráðgjöf – við svörum fljótt og finnum réttu lausnina.
Hafa samband