DS Lausnir logo

Fáðu tilboð í byggingakrana

Við hjá DS Lausnum byggjum á áratuga reynslu af verkefnum bæði á Íslandi og í alþjóðlegum verkefnum. Við veitum faglega ráðgjöf fyrir öll verkefni þar sem kranar koma við sögu.

Við veitum verktökum og byggingariðnaðinum fljóta og góða þjónustu og kappkostum að hafa ávallt til reiðu krana í réttri stærð fyrir viðskiptavini okkar.

Gerð áhættumats og hífiáætlana er fastur liður í verkferli DS Lausna þegar kemur að áhættusömum verkefnum. Það er stefna fyrirtækisins að vera ávallt fremst í flokki þegar kemur að öryggi og fagmennsku við hífingar.

Eigum ávallt til sölu nýja og notaða bygginga- og bílkrana.

Cattaneo

Þessir frábæru kranar hafa komið eins og stormsveipur inn á markað hérlendis og ekkert lát virðist vera á vinsældum þeirra. Einfaldleiki, sterkir mótorar og hugvit í hönnun og smíði þessara krana hafa sparað eigendum Cattaneo krana tíma og peninga frá fyrsta kaupdegi.

Potain

Við hjá DS Lausnum erum stoltir samstarfsaðilar Potain S.A. sem er franskur framleiðandi turnkrana. Það er ekki að ástæðulausu að Potain kranar eru meðal vinsælustu byggingarkrana í heiminum, en Potain er með rúmlega fjórðungs markaðshlutdeild af öllum turnkrönum á heimsvísu.

Hafðu samband
Leitaðu til okkar til að fá ráðgjöf og tilboð í þitt verkefni.
Hafa samband