


Grove kranar
Við hjá DS Lausnum erum stoltir samstarfsaðilar Grove, sem er leiðandi framleiðandi bílkrana á heimsvísu. Grove hefur í nærri heila öld boðið upp á framúrskarandi tækni og áreiðanleika í sínum krönum, sem ná yfir fjölbreytt úrval all-terrain og truck-mounted lausna. Frá árinu 2002 hefur Grove verið hluti af Manitowoc Cranes Group, sem hefur höfuðstöðvar í Bandaríkjunum og er eigandi Grove, Manitowoc, National Crane, Potain og Shuttlelift, með starfsemi víðsvegar um heiminn.